Umsjón og ritstjórn: Margrét Guðnadóttir
Í ljósi þess að þjóðin eldist hratt er mikilvægt að horfa til margbreytilegra aðstæðna þess fjölbreytta hóps sem eldra fólk er. Á málþinginu verður litið yfir stöðu og þróun aðstæðna hjá eldra fólki á Íslandi síðustu ár ásamt því að tengja saman lýðfræðilegar breytingar og heilbrigða öldrun við þær áskoranir sem fylgja breyttu heilsufarsástandi á efri árum.
Dagskrá
Kolbeinn H. Stefánsson, dósent við Félagsráðgjafardeild – Lýðfræði og tekjur: Er fátækt hverfandi meðal eldra fólks?
Halldór S. Guðmundsson, dósent við Félagsráðgjafardeild – Velferð og vinna eldra fólks
Anna Björg Jónsdóttir, yfirlæknir öldrunarlækninga – Heilbrigð öldrun
Margrét Guðnadóttir, forstöðumaður Miðstöðvar í öldrunarfræðum og sérfræðingur í heimahjúkrun – Að eldast heima og aðlagast heilsumissi
Fundarstjóri er María Heimisdóttir, landlæknir
Um Heilsuna okkar
Heilsan okkar er ný fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar. Tekið er við spurinngum úr sal eftir að erindum lýkur og þá fara einnig fram pallborðsumræður.
Hlekkur á streymi kemur hér á Facebook-viðburð og á viðburðasíðu á hi.is og upptaka af fundinum svo gerð aðgengileg fljótlega eftir fundinn hér.