Hjúkrunarfræðingur í áfallateymi geðþjónustu
Öflugur hjúkrunarfræðingur óskast til starfa í áfallateymi geðþjónustu Landspítala. Teymið er eitt af sérhæfðum göngudeildarteymum í meðferðareiningu lyndisraskana og er staðsett á Kleppi.
Meginverkefni áfallateymisins er þjónusta við notendur sem hafa orðið fyrir áföllum og eru að takast á við afleiðingar þeirra. Áhersla er lögð á góðan starfsanda, efla þverfaglega teymisvinnu og stöðugar umbætur.
Starfið felst meðal annars í mati á þörfum einstaklings, mati á geðrænum og líkamlegum einkennum, þróun og innleiðing á einstaklingsbundinna meðferðaráætlana og mati á árangri þjónustunnar.
Í boði eru fjölbreytt tækifæri til vaxtar í starfi með markvissri þjálfun og starfsþróun og boðið er upp á faglega handleiðslu. Hjúkrunarfræðingur í áfallateyminu er virkur þátttakandi í mótun framtíðarsýnar á áfallamiðaðri þjónustu og eflingu hjúkrunar innan teymisins og geðþjónustu Landspítala.
Starfshlutfall er 80-100% og unnið er í dagvinnu. Ráðið verður í starfið sem fyrst eða skv. nánara samkomulagi.
- Þjónusta við notendur í áfallateymi og aðstandendur þeirra
- Málastjórn, geðfræðsla, heildrænn stuðningur við andlega og líkamlega heilsu notenda
- Mat á einkennum áfalla og afleiðingum þeirra
- Þróun þjónustu á þverfaglegum grundvelli
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu og samvinna við önnur teymi/stofnanir
- Þátttaka í umbóta- og gæðaverkefnum
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Einlægur áhugi á geðhjúkrun, reynsla af hjúkrun fólks með geðrænar áskoranir er kostur
- Áhugi á áföllum og afleiðingum þeirra
- Þekking og reynsla af áfallamiðaðri þjónustu er kostur
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og áhugi að þróa hlutverk hjúkrunar innan þessa málaflokks
- Sveigjanleiki og hæfni til aðlaga þjónustu að fjölbreyttum þörfum notenda
- Vilji til að starfa í þverfaglegu teymi
- Stundvísi, áreiðanleiki og lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Starfið auglýst 15.08.2024. Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 24.09.2024.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna