Aðstoðardeildarstjóri - Dauðhreinsun
Við leitum eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum hjúkrunarfræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra á Dauðhreinsun við Tunguháls. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á stjórnun og gæðamálum og þarf að búa yfir afburða samskiptahæfni og hafa hæfni til að takast á við breytingar. Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag starfseminnar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga. Starfshlutfall er 100% og unnið í dagvinnu. Starfið er laust 1. desember n.k. eða eftir nánara samkomulagi.
Dauðhreinsun verður meðal fyrstu eininga sem flytur í nýjan spítala og verður því deildin í mikilli þróun á næstu árum til undirbúnings fyrir það. Aðstoðardeildarstjóri verður, ásamt deildarstjóra, lykilaðili við að undirbúa flutning deildarinnar og því felst meðal annars að endurskipuleggja starfsemi deildarinnar, rýna ferla og tryggja gæði þjónustunnar. Aðstoðardeildarstjóri er virkur þátttakandi í stjórnendateymi deildarinnar í ýmsum verkefnum tengdum stjórnun, rekstri, þjónustu og mannauði. Starfið felur í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er í góðu samstarfi við þverfagleg teymi og fjölmargt annað fagfólk spítalans. Í boði er spennandi og áhugavert starf og mikil tækifæri til að taka þátt í umbreytingarverkefnum.
Á deildinni starfa um 17 einstaklingar í þverfaglegu teymi sem samanstendur af sérhæfðu starfsfólki, sótthreinsitæknum og hjúkrunarfræðingum. Meginverkefni deildarinnar snúa að því að raða, pakka og dauðhreinsa verkfæri sem notuð eru á skurðstofum spítalans auk þess að sjá um að pakka og dauðhreinsa verkfæri frá öðrum starfsstöðvum innan og utan spítalans. Starfsemi deildarinnar er mikilvægur hlekkur í skurðstofustarfsemi og í að tryggja öryggi sjúklinga og sýkingarvarnir á Landspítala. Góð vinnuaðstaða er á deildinni og er hún vel tækjum búin. Dauðhreinsun tilheyrir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu Landspítala en þar starfa um 1200 einstaklingar í tæplega 900 stöðugildum.
- Skipuleggur starfsemi deildarinnar í samráði við deildarstjóra
- Ber ábyrgð á verkefnum sem deildarstjóri felur honum s.s. vaktaskýrslugerð og umsjón með framleiðslu
- Er leiðandi í faglegu starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu
- Ber ábyrgð á starfsemi, rekstri og mönnun deildarinnar í fjarveru deildarstjóra
- Leiðir umbreytingarverkefni og teymisvinnu deildarinnar í samráði við deildarstjóra
- Vinnur náið með deildarstjóra að mótun liðsheildar
- Þátttaka í stjórnendateymi deildarinnar í ýmsum verkefnum
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Klínísk starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Starfsreynsla við skurðhjúkrun er kostur
- Stjórnunarþekking og leiðtogahæfni
- Jákvætt viðhorf og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Þjónustulund, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og færni í teymisvinnu
- Góð íslenskukunnátta og mjög góð tölvufærni
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, sérfræðingur í hjúkrun, aðstoðardeildarstjóri, hjúkrun, stjórnunarstarf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5