Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á bráðalyflækningadeild Fossvogi
Laust er til umsóknar starf heilbrigðisritara/ skrifstofumanns sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi í krefjandi þverfaglegu umhverfi á bráðalyflækningadeild A2 í Fossvogi. Um er að ræða 40% starf í vaktavinnu, kvöldvaktir eina helgi í mánuði og svo dagvaktir.
Bráðalyflækningadeild er 19 rúma legudeild, ætluð sjúklingum með afmörkuð bráð og langvinn lyflæknisfræðileg vandamál sem þarfnast innlagnar á sjúkrahús og falla undir almennar lyflækningar. Á deildinni starfar samhentur þverfaglegur hópur og ríkir góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði.
Við sækjumst eftir þjónustuliprum einstaklingi sem er lausnamiðaður, með góða samskiptahæfni og sem á auðvelt með að vinna í teymi. Starfið er laust frá 1. september 2025 eða samkvæmt samkomulagi. Tekið er vel á móti nýju samstarfsfólki og veitt góð einstaklingshæfð aðlögun.
- Ritari sinnir almennum og sérhæfðum ritarastörfum á deild s.s. símsvörun, upplýsingagjöf, útvegun og frágangur gagna og gagnavinnsla í tölvukerfum Landspítala
- Ritari er jafnframt aðstoðamaður hjúkrunardeildarstjóra og er andlit deildarinnar út á við. Starfið felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt, krefjandi verkefni.
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og skv. ákvörðun deildarstjóra.
- Heilbrigðisritaramenntun æskileg og/ eða reynsla af ritarastörfum
- Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar, þjónustulipurð og jákvæðni
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi og geta til að vinna undir álagi
- Krafa um góða tölvukunnáttu
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisritari, skrifstofustarf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5