Sjúkraliðar í blóðtökuþjónustu
Við leitum að sjúkraliðum sem hafa áhuga á að bætast í hóp okkar frábæra sýnatökuteymis á rannsóknarkjarna Landspítala. Sjúkraliðarnir okkar sinna blóðsýnatökuþjónustu á legudeildum spítalans, göngudeildinni okkar og víða á heilsugæslustöðvum. Við bjóðum upp á góðan aðlögunartíma og kennslu og því er reynsla við blóðsýnatökur ekki skilyrði.
Nýútskrifaðir sjúkraliðar sem og reynslumiklir eru velkomnir í okkar frábæra starfshóp. Almennur vinnutími í 100% starfi er frá kl. 8-16 en unnið er með 36 tíma vinnuviku og því er vinnuskylda einn dag í viku til hádegis eftir rúllandi kerfi. Möguleiki er á lægra starfshlutfalli, erum þó ekki að leita að sjúkraliðum í lægra starfshlutfall en 60%. Æskilegt er að viðkomandi hafi bíl til umráða og geti hafið störf sem fyrst.
- Blóðtökuþjónusta á rannsóknarkjarna Landspítala við Hringbraut og í Fossvogi
- Eftir atvikum blóðtökuþjónusta á heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu
- Stuðla að góðri þjónustu
- Virk þátttaka í teymis- og gæðastarfi
- Íslenskt starfsleyfi sjúkraliða
- Nákvæmni í vinnubrögðum og hæfni til að vinna undir álagi
- Góð íslenskukunnátta
- Jákvætt viðmót, góð samskiptahæfni
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði
Tungumálahæfni: Íslenska 3/5,