Heilbrigðisgagnafræðingur á fæðingarvakt
Við óskum eftir að ráða heilbrigðisgagnafræðing til starfa á fæðingarvakt á kvenna og barnaþjónustu Landspítala, Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni og mikil samskipti. Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í dagvinnu virka daga og ráðið er í starfið frá 1. október 2025 eða samkvæmt samkomulagi.
Á deildinni starfa um 100 einstaklingar og er fagmennska og teymisvinna höfð að leiðarljósi.
- Umsjón og skráning á fæðingartilkynningum
- Innskriftir og útskriftir skjólstæðinga í Sögukerfið
- Panta kennitölur og gefa fæðinganúmer
- Móttaka kvenna
- Aðstoða við símsvörun
- Yfirferð á tímaskráningum starfsmanna
- Tengiliður við birgðarstöð
- Önnur tilfallandi verkefni
- Íslenskt starfsleyfi sem heilbrigðisgagnafræðingur
- Jákvætt viðmót, þjónustulipurð og samskiptahæfni
- Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði í starfi og geta til að vinna undir álagi
- Mjög góða íslensku- og enskukunnáttu
- Góð tölvukunnátta er skilyrði, þekking á Sögukerfi Landspítala er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Heilbrigðisgagnafræðingur, skrifstofustörf, móttaka
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5