Hjúkrunarfræðingur á skilunardeild
Við óskum eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan hjúkrunarfræðing til starfa með okkur á skilunardeild Landspítala við Hringbraut.
Skilunardeildin er spennandi og faglega krefjandi vinnustaður þar sem unnið er náið með sjúklingum í tæknilegu umhverfi. Á deildinni fer fram blóðskilun en einnig kennsla, þjálfun og eftirlit sjúklinga í kviðskilun en þessar meðferðir eru lífsnauðsynlegar fyrir einstaklinga með lokastigsnýrnabilun. Starf hjúkrunarfræðings á skilunardeild felur í sér mjög fjölbreytta hjúkrun og mikil tækifæri.
Á deildinni starfa um 30 einstaklingar í þverfaglegu teymi hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, tæknimanna og lækna. Opnunartími deildarinnar er frá kl. 8:00-20:00 virka daga og kl. 8:00 -15:00 um helgar. Unnið er á tvískiptum vöktum og bakvaktir eru utan opnunartíma. Skjólstæðingar deildarinnar eru um 100 talsins á öllum aldri.
Nýráðinn hjúkrunarfræðingur fær góða þjálfun, kennslu og eftirfylgni af reyndum skilunarhjúkrunarfræðingum í 8-12 vikur.
Við bjóðum upp á gott starfsumhverfi með fjölskylduvænum vinnutíma, fyrsta flokks mötuneyti og niðurgreiddar máltíðir, nýuppgerða kaffistofu og svalir með frábæru útsýni.
Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
- Framkvæmd á blóðskilunarmeðferð og ábyrgð á alhliða eftirliti og eftirfylgni með sjúklingi í skilunarmeðferð, þar með talið leiðsögn og kennsla í viðeigandi viðfangsefnum
- Alhliða hjúkrun fyrir sjúklinga með langvinna eða bráða nýrnabilun og fjölskyldur þeirra
- Skráning hjúkrunar, í samræmi við gæðaviðmið Landspítala
- Hæfileiki til þverfaglegrar teymisvinnu og til að vinna sjálfstætt
- Samábyrgð á góðu og innihaldsríku starfsumhverfi
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Faglegur metnaður, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
- Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni
- Áhugi á að starfa í krefjandi og fjölbreyttu starfsumhverfi
- Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 3/5