Aðstoðarmaður sjúkraþjálfara í Fossvogi
Sjúkraþjálfun Landspítala í Fossvogi óskar eftir öflugum einstaklingi í starf aðstoðarmanns sjúkraþjálfara. Starfið er fjölbreytt og lærdómsrík en stærsti hluti starfsins felst í því að aðstoða sjúkraþjálfara og sjúklinga við þjálfun.
Í sjúkraþjálfun Fossvogi starfar 30 manna samhentur hópur; sjúkraþjálfarar, sérhæfðir aðstoðarmenn sjúkraþjálfara, íþróttafræðingur og skrifstofumaður. Góður starfsandi er ríkjandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði. Hópurinn sinnir fjölbreyttri endurhæfingu meðal annars fyrir einstaklinga með taugasjúkdóma, eftir bæklunaraðgerðir og aðra sem þarfnast almennrar endurhæfingar eftir veikindi. Í Fossvoginum er einnig sérhæfð göngudeild.
Um dagvinnu er að ræða en einnig er möguleiki á laugardagsvöktum frá klukkan 8-14. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða skv. samkomulagi. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða aðlögun.
Boðið er upp á 36 stunda vinnuviku í 100% starfi með það að markmiði að stuðla að betri heilsu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs, með bættri nýtingu vinnutíma og gagnkvæmum sveigjanleika sem nýtist bæði starfsfólki og vinnustaðnum. Einnig er í boði samgöngusamningur og önnur starfstengd fríðindi.
- Aðstoða sjúkraþjálfara og sjúklinga við þjálfun
- Umsjón með vinnusvæði, létt þrif á tækjum, umsjón með líni og öðrum rekstrarvörum
- Öryggisvarsla og eftirlit með sjúklingum á þjálfunarsvæði
- Afleysing ritara við afgreiðslu á göngudeild, pantanir og símavörslu
- Eftirlit með búnaði og tækjum
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
- Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
- Almenn tölvukunnátta
- Reynsla af umönnunarstörfum er kostur
- Góð kunnátta í íslensku
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Sjúkraþjálfun, endurhæfing, aðstoðarmaður, starfsmaður
Tungumálahæfni: íslenska 4/5