Sjúkraþjálfari á Landspítala Landakoti
Við óskum eftir að ráða sjúkraþjálfara í okkar góða hóp í sjúkraþjálfun á Landakoti.
Hér er kjörið tækifæri til að dýpka þekkingu og verða hluti af skemmtilegri og öflugri liðsheild. Á Landakoti fer fram sérhæfð og þverfagleg endurhæfing fjölbreytts hóps sjúklinga. Lögð er áhersla á greiningarvinnu, fagþróun, kennslu og þverfaglegt samstarf. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum aðlögun undir handleiðslu reyndra sjúkraþjálfara.
Fríðindi í starfi eru meðal annars sveigjanlegur vinnutími, engin kvöld- eða helgarvinna fyrir utan nokkra rauða daga á ári, aðgangur að mötuneyti og afsláttur á verði máltíða, tækifæri til símenntunar með aðgangi að fjölbreyttum innri námskeiðum. Einnig býður Landspítali starfsfólki sínu uppá samgöngusamning.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 klst. á viku vegna styttri vinnuviku en markmiðið er að stuðla að betri heilsu starfsfólks þar sem vinnutíminn er nýttur betur og starfsfólk hefur með því aukna möguleika til að samþætta vinnu og einkalíf.
Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi og er æskilegt að umsækjandi geti hafið störf 1. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi.
- Greining, meðhöndlun og endurhæfing sjúklinga
- Fræðsla fyrir sjúklinga og aðstandendur
- Skráning í sjúkraskrákerfi Landspítalans
- Þátttaka í fjölfaglegum teymisfundum
- Undirbúningur og skipulagning endurhæfingaáætlana
- Þáttaka í fagþróun og umbótastarfi
- Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, endurhæfing, sjúkraþjálfun
Tungumálahæfni: íslenska 3/5