Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á kvenlækningadeild
Við viljum ráða til starfa heilbrigðisritara/ skrifstofumann sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi í krefjandi þverfaglegu umhverfi á dag- og legudeild kvenlækningadeildar Landspítala. Á deildinni starfar samhent teymi starfsfólks sem veitir fjölþætta heilbrigðisþjónustu allan sólarhringinn. Deildin, sem er í senn legu-, dag- og göngudeild, sinnir bráðatilfellum kvensjúkdóma sem og konum með góðkynja og illkynja sjúkdóma í grindarholi og brjóstum.
Leitum eftir metnaðarfullum einstaklingi sem er lausnamiðaður, þjónustulipur, með góða samskiptahæfni og sem á auðvelt með að vinna í teymi. Unnið er virka daga frá kl. 8-16. Ráðið er í starfið frá 1. september 2025 eða eftir samkomulagi.
- Almenn og sérhæfð ritarastörf á deild s.s. símsvörun, upplýsingagjöf, útvegun og frágangur gagna og gagnavinnsla í tölvukerfum Landspítala
- Ábyrgð á daglegum viðfangsefnum deildar samkvæmt verklagi
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra
- Heilbrigðisritaranám, stúdentspróf eða annað sambærilegt nám
- Reynsla af ritarastörfum er kostur
- Mjög gott viðmót, þjónustulipurð og samskiptahæfni
- Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði í starfi og geta til að vinna undir álagi
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta er skilyrði, þekking á Sögukerfi Landspítala kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisritari, ritari, móttaka, skrifstofustörf
Tungumálahæfni: íslenskas 4/5, enska 3/5