Heilbrigðisgagnafræðingur - Geislameðferð læknar
Geislameðferð í krabbameinsþjónustu Landspítala leitar að öflugum einstaklingi í áhugavert starf við umsjón með rekstri skrifstofu sérgreinarinnar og fjölbreytt skrifstofustörf á einingunni.
Starfið er mjög fjölbreytt og krefjandi og mun viðkomandi m.a. hafa umsjón með rekstri skrifstofu sérgreinarinnar og verða hluti teymis sérgreinarinnar auk þess að sinna verkefnum innan krabbameinsþjónustunnar. Heilbrigðisgagnafræðingur vinnur undir stjórn yfirlæknis geislameðferðar.
Við leitum eftir skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni og sem á auðvelt með að vinna í teymi. Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í dagvinnu og er starfið laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og auknu öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Umsjón og rekstur skrifstofu sérgreinar í samráði við yfirlækni
- Umsjón með vinnuskipulagi, vaktaskrá og vinnutímaskráningu sérfræðilækna
- Upplýsingagjöf og samskipti við sjúklinga, starfsmenn og stofnanir
- Skipuleggja og hafa yfirsýn yfir fundi, vinnustofur og aðra viðburði innan sérgreinarinnar
- Aðstoð við skipulagningu kennslu og vísindastarfa á vegum sérgreinarinnar
- Þátttaka og þróun í upplýsingatækni við ritun í rafræna sjúkraskrá sviðsins
- Svörun ráðgjafarsíma í samvinnu við hjúkrunarfræðing og sérfræðilækna
- Ýmis verkefni í samvinnu við yfirlækni og sérfræðilækna
- Þátttaka í ýmsum sérverkefnum t.d. gerð bæklinga og staðlaðra upplýsinga til sjúklinga og þróun á heimasíðu
- Samvinna og samstarf við aðrar sérgreinar
- Starfsleyfi sem heilbrigðisgagnafræðingur, starfsreynsla æskileg
- Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
- Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi samskiptahæfileikar
- Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi
- Hæfni og geta til að starfa í teymi
- Gott vald á íslensku og ensku
- Góð tölvuþekking og færni í helstu tölvuforritum
- Þekking á sjúkraskrárkerfinu Sögu er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisgagnafræðingur, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5