Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á legudeild lyndisraskana Kleppi
Áhugasamir og metnaðarfullir ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar óskast til starfa á legudeild lyndisraskana Kleppi. Deildin er opin 12 rúma legudeild og sinnir meðferð einstaklinga með lyndisraskanir og fjölþættan vanda. Deildin vinnur einnig í nánu samstarfi við meðferðarteymi göngudeildar lyndisraskana. Á deildinni er unnið fjölbreytt og sérhæft starf sem einkennist af góðum starfsanda, virkri og stöðugri framþróun og ótal tækifæri eru til að vaxa í starfi.
Við leitum eftir jákvæðum og ábyrgum einstaklingum með framúrskarandi samskiptahæfni. Viðkomandi þarf að búa yfir skapandi hugsun og hafa metnað og áhuga á að starfa við geðendurhæfingu. Við tökum vel á móti bæði nýútskrifuðum og reyndu fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Um er að ræða 80-100% starf eða eftir nánara samkomulagi. Ráðið verður frá 1. september 2025 eða eftir samkomulagi. Unnið er á breytilegum dag-, kvöld- og helgarvöktum. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Díönu deildastjóra.
- Samskipti, hvatning, leiðbeiningar og víðtækur stuðningur
- Virk þátttaka í þverfaglegu teymi
- Ýmis fjölbreytt verkefni sem starfsemi deildarinnar felur í sér
- Fylgja sjúklingi eftir í daglegri virkni, framfylgja meðferðarsamningum og meðferðaráætlunum ásamt því að bera ábyrgð á ákveðnum skráningum
- Stuðningur við athafnir dagslegs lífs
- Taka þátt í meðferðarvinnu í samráði við teymi sjúklings
- Taka þátt í og sjá um að fyrirliggjandi dagskrá deildar hverju sinni sé framfylgt
- Stuðla að góðum starfsanda
- Menntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði hjúkrunar, uppeldis-, atferlis-, íþrótta- eða sálfræðimenntunar er kostur
- Starfsreynsla af líkamlegri umönnun eða hjúkrun er kostur
- Starfsreynsla innan geðþjónustu Landspítala er kostur
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
- Hæfni og vilji til að vinna í þverfaglegu teymi
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli, viðbótar tungumálakunnátta kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Ráðgjafi, stuðningsfulltrúi, starfsmaður, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,