Hjúkrunarfræðingur - Göngudeild hjartabilunar, Hjartagátt
Viltu vera hluti af framúrskarandi teymi sem vinnur að því að bæta líf hjartasjúklinga?
Göngudeild hjartabilunar við Hringbraut leitar eftir reyndum og áhugasömum hjúkrunarfræðingi til að styrkja okkar frábæra teymi. Þetta er einstakt tækifæri til að þróa með þér faglega þekkingu á sérhæfðu sviði og hafa raunveruleg áhrif á líðan hjartasjúklinga og fjölskyldna þeirra. Ráðið verður í starfið frá 1. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi.
Af hverju að velja okkur?
Fagleg tækifæri
- Einstaklingsmiðuð aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga
- Sjálfstæð vinnubrögð í krefjandi og fjölbreyttu starfi
- Tækifæri til að þróa sérhæfða þekkingu í hjúkrun hjartasjúklinga
Frábær vinnustaður
- 36 stunda vinnuvika í fullri dagvinnu
- Betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs
- Náið samstarf við hjartalækna og þverfaglegt teymi
- Hluti af sterku teymi innan Landspítala
Þú verður lykilþátttakandi í hjúkrun og stuðningi við einstaklinga með hjartabilun:
- Hjúkrun og fræðsla - Veitir sjúklingum og aðstandendum þeirra persónulega þjónustu, fræðslu og stuðning
- Ráðgjöf - Deilir þinni sérþekkingu með öðrum fagaðilum og veitir símaþjónustu
- Teymisvinna - Tekur virkan þátt í þverfaglegri teymisvinnu
- Þróunarstarf - Hjálpar til við uppbyggingu og þróun deildarinnar
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Jákvæðni og góða samskiptahæfni
- Reynsla af hjúkrun hjartasjúklinga og/ eða langveikra æskileg
- Áhuga á hjúkrun hjartasjúklinga
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Faglegur metnaður og áhugi á þróunarstarfi
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5