Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á almennri göngudeild
Laust er til umsóknar starf heilbrigðisritara/ skrifstofumanns á göngudeild 10E við Hringbraut. Starfið felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Á göngudeild 10E eru sérhæfðar teymismóttökur á sviði skurð- og lyflækninga s.s. undirbúningur sjúklinga fyrir aðgerðir og göngudeildir brjósthols- og kviðarholsskurðlækninga, ígræðslu-, meltinga- og nýrnalækninga. Þá er einnig veitt sérhæfð þjónusta t.d. sára- og innrennslismeðferðir.
Við leitum eftir metnaðarfullum einstaklingi sem er lausnamiðaður, þjónustulipur, með góða samskiptahæfni og sem á auðvelt með að vinna í teymi. Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100%, unnið er virka daga frá kl. 8-16. Við leggjum áherslu á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun og gott starfsumhverfi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Útvegun og frágangur gagna og gagnavinnsla í tölvukerfum Landspítala
- Símsvörun og upplýsingagjöf: Svara símtölum, og leiðbeina sjúklingum og aðstandendum þeirra
- Umsjón vaktaskema
- Umsjón og samkipti við erlenda afleysingalækna og sjúkahús erlendis
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfimann
- Heilbrigðisritaranám, stúdentspróf eða annað sambærilegt nám
- Reynsla af ritarastörfum er kostur
- Jákvætt viðmót, þjónustulipurð, sveigjanleiki og afburða samskiptahæfni
- Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði í starfi og geta til að vinna undir álagi
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
- Þekking á Sögu og klínískum kerfum Landspítala er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisritari, skrifstofustörf, móttaka, ritari, skrifstofumaður
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5