Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður, hlutastarf
Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður óskast í hlutastarf á bráðaöldrunarlækningadeild B4 í Fossvogi. Deildin er sólarhringsdeild með 22 legurýmum þar sem fram fer greining, meðferð og hjúkrun bráðveikra aldraðra einstaklinga. Lögð er áhersla á góð samskipti við sjúklinga, fjölskyldur þeirra og samstarfsfólk á deild.
Við leitum eftir þjónustuliprum einstaklingi sem er fljótur að læra og tileinka sér hlutina, með góða samskiptahæfni og sem á auðvelt með að vinna í teymi. Starfið felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt og krefjandi verkefni. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Starfshlutfall er 70% og unnið er aðra hverja helgi. Ráðið er í starfið sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir sem getur orðið enn minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Almenn og sérhæfð ritarastörf á deild s.s. símsvörun, upplýsingagjöf, útvegun og frágangur gagna og gagnavinnsla í tölvukerfi Landspítala
- Pantanir og innkaup
- Ábyrgð á daglegum verkefnum deildar skv. verklagi
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra
- Heilbrigðisritaramenntun, stúdentspróf eða annað nám og/ eða reynsla sem nýtist í starfi
- Faglegur metnaður, þjónustulipurð og góð færni í mannlegum samskiptum
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð sem og frumkvæði í starfi
- Tölvufærni
- Þekking á tölvukerfi Landspítala æskileg
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisritari, skrifstofustörf, móttaka, ritari, skrifstofumaður
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5