Háskólamenntaður starfsmaður á erfða- og sameindalæknisfræðideild/ tímabundin starf til eins árs
Við leitum eftir jákvæðum, sjálfstæðum og metnaðarfullum einstaklingi til starfa á erfða- og sameindalæknisfræðideild. Deildin heyrir undir rannsóknarþjónustu og þar fara fram greiningar, vísindarannsóknir, ráðgjöf og kennsla heilbrigðisstétta í faginu. Starfið er tímabundið til eins árs og er upphaf starfa samkomulag en æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Á deildinni starfa um 45 einstaklingar í öflugu þverfaglegu teymi. Góður starfsandi er ríkjandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum á deildinni. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. Vinnutími er frá kl. 8-16, virka daga og einnig er bakvakt um helgar.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Þjónusturannsóknir í litningarannsóknum og önnur verkefni tengd starfsemi deildarinnar
- Skil á svörum samkvæmt stöðluðum aðferðalýsingum og viðeigandi verklagsreglum
- Að stuðla að faglegu starfi, gæðum og framförum í rannsóknum innan deildarinnar
- Háskólapróf í náttúrufræði, lífeindafræði, lífefnafræði, líffræði eða sambærilegum greinum
- Eins árs starfsþjálfun á sérhæfðum rannsóknarstofum heilbrigðisstofnana eða framhaldsmenntun í greinum heilbrigðisvísinda
- Sérmenntun og/eða starfsreynsla á sviði litningarannsókna æskileg
- Reynsla af vinnu við klínískar rannsóknir í erfðafræði æskileg
- Íslenskt starfsleyfi náttúrufræðings eða lífeindafræðings í heilbrigðisþjónustu æskilegt
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð skipulagshæfni, frumkvæði, sjálfstæði og öguð vinnubrögð
- Jákvætt viðmót, lipurð í samskiptum og fagleg framkoma
- Hæfni til að starfa í teymi
- Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Náttúrufræðingur, lífeindafræðingur, rannsóknir, heilbrigðisvísindi, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5