Vöru- og verkefnastjóri í heilbrigðistækni á þróunarsviði
Við leitum að metnaðarfullum og öflugum leiðtoga með brennandi áhuga á heilbrigðis- og upplýsingatækni til að sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á þróunarsviði Landspítala.
Heilbrigðistækni er hluti af einingunni stafræn framþróun sem tilheyrir nýju þróunarsviði Landspítala og ber ábyrgð á öflun, framþróun og rekstri heilbrigðistæknilausna spítalans. Starfsmenn sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum tengdum rekstri um 300 hugbúnaðarkerfa, 9000 lækninga- og rannsóknarstofutækja, öflun og innleiðingu nýs hugbúnaðar ásamt því að sinna ráðgjöf til klínískra deilda um tækninýjungar og framþróun á sviði heilbrigðistækni.
Á þróunarsviði starfa um 110 einstaklingar. Markmið þróunarsviðs er að styðja við þróun heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar og við að veita framúrskarandi þjónustu við klíníska starfsemi.
- Ráðgjöf, verkefnastjórn og greiningarvinna fyrir klíníska starfsemi Landspítala á sviði heilbrigðis- og upplýsingatækni
- Öflun og innleiðing lækningatækja og hugbúnaðarkerfa, þ.á.m. útboð, verðfyrirspurnir og samningagerð
- Verkefni tengd framþróun og rekstri lækningatækja og hugbúnaðarkerfa
- Verkefni tengd þarfagreiningu, vali, uppsetningu og innleiðingu lækningatækja, hugbúnaðarkerfa og ferla á nýjum spítala
- Náin samvinna og ráðgjöf við notendur á sviði heilbrigðistækni, lækningatækja og hugbúnaðarlausna á spítalanum
- Aðkoma að verkefnum tengdum Nýjum Landspítala
- Leiðtoga- og samskiptahæfni
- Framhaldsnám í verkfræði eða sambærilegu námi sem nýtist í starfi
- Nám í heilbrigðisverkfræði er kostur
- Þekking og reynsla af verkefna- og vörustjórnun er kostur
- Marktæk reynsla af heilbrigðistæknistörfum er kostur
- Góð færni í ensku og íslensku í ræðu og riti
- Lausnamiðuð hugsun og frumkvæði
- Önnur reynsla sem nýtist í starfi
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, verkfræðingur, tölvunarfræðingur, vörustjóri
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska: 3/4