Leit
LokaHjúkrunarfræðingur á móttöku svæfingadeildar við Hringbraut
Óskað er eftir faglegum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til starfa á móttökum svæfingadeildar við Hringbraut. Starfið er laust 1. júní 2018 eða eftir nánara samkomulagi og er um dagvinnu á virkum dögum að ræða. Við bjóðum einstaklingsaðlagaða þjálfun, eftir þörfum hvers og eins, á góðum vinnustað þar sem áhersla er lögð á fagmennsku og starfsþróun. Starfið er sérstaklega áhugavert fyrir hjúkrunarfræðinga sem hafa hug á að sérmennta sig í svæfingahjúkrun.
Á svæfingadeild Landspítala starfa um 35 svæfingahjúkrunarfræðingar við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Svæfingadeild heyrir undir aðgerðasvið sem annast rekstur skurðstofa, gjörgæsludeilda, Blóðbankans, dauðhreinsunardeildar auk speglunardeildar.

» Móttaka sjúklinga fyrir aðgerðir
» Aðstoð við undirbúning og ísetningu deyfinga, æðaleggja og verkjameðferða
» Vöktun sjúklinga
» Ákveða, skrá og veita hjúkrunarmeðferð í samræmi við þarfir skjólstæðinga og bera ábyrgð á meðferð, samkvæmt starfslýsingu og vinnureglum deildar

» Faglegur metnaður
» Góð samskiptahæfni
» Sjálfstæði í vinnubrögðum
» Íslenskt hjúkrunarleyfi
» Góð samskiptahæfni
» Sjálfstæði í vinnubrögðum
» Íslenskt hjúkrunarleyfi
Starfshlutfall
80 - 100%
Umsóknarfrestur
30.04.2018
Nánari upplýsingar
Margrét Pálsdóttir, margretp@landspitali.is, 824 5226
Þórgunnur Hjaltadóttir, torghjal@landspitali.is, 825 5136
LSH Svæfing H
Hringbraut
101 Reykjavík
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.