TF-LíF fer í minningarflug og lendir á þyrlupallinum á Landspítala Fossvogi kl. 12:00 föstudaginn 4. mars 2016.
Með því er þess minnst að 20. febrúar síðstliðinn voru 30 ár liðin frá því að þyrluvakt lækna var sett á laggirnar af nokkrum frumkvöðlum sem unnu fyrsta árið í sjálfboðavinnu. Vaktin, ásamt áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, gjörbreytti því umhverfi sem verið hafði í bráðalækningum á Íslandi og var fljót að sýna gildi sitt. Nú þætti annað fyrirkomulag óhugsandi.