Ný útskriftardeild fyrir aldraða var opnuð á Landakoti 3. mars 2016. Deildin er eingöngu ætluð þeim sem taldir eru geta útskrifast heim eftir umfangsmikla endurhæfingu í allt að 30 daga. Um er að ræða tilraunaverkefni til eins árs sem ætlað er að bæta endurhæfingu aldraðra sem og flæði sjúklinga. Á deildinni verður rými fyrir 18 sjúklinga.
Algengt er að sjúklingar sem liggja á bráðalegudeildum missi getu til að fara í endurhæfingu á meðan þeir bíða eftir slíku úrræði. Nú bíða um 30 sjúklingar á bráðalegudeildum Landspítala eftir endurhæfingu á Landakoti. Ljóst er að meirihluti þeirra getur nýtt sér útskriftardeildina. Við það batnar flæði innan Landspítala þar sem rúm á bráðadeildum nýtast þá til meðferðar á bráðveiku fólki fremur en sem biðrými eftir endurhæfingu.
Rík áhersla verður lögð á samstarf við heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í þessu verkefni en heimahjúkrun fær upplýsingar um sjúklinga um leið og þeir leggjast inn á deildina til að undirbúningur að umönnun í heimahúsi geti hafist strax við innlögn og ekki verði tafir á útskrift vegna þessa.
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri flæðisviðs Landspítala:
„Ný útskriftardeild og fyrirhuguð uppbygging í heilsugæslu og heimahjúkrun skapa samfellu í þjónustu við aldraða og stuðla að því að fleiri aldraðir geti dvalið lengur heima hjá sér. Slík úrræði hljóta að teljast einstaklega ákjósanleg við þær aðstæður sem ríkja í búsetumálum aldraðra á höfuðborgarsvæðinu. Á grundvelli þessa tilraunaverkefnis verður hægt að gera áætlanir um frekari uppbyggingu slíkra deilda í samvinnu við heimahjúkrun á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið er liður í bættri þjónustu við aldraða sem Alþingi veitti sérstöku fjármagni til á síðustu fjárlögum og er hluti af aðgerðum heilbrigðisráðherra til að bæta flæði sjúklinga á Landspítala.“