Árni Már Haraldsson gjörgæsluhjúkrunarfræðingur hefur verið settur sem deildarstjóri á gjörgæslunni á Landspítala Hringbraut til eins árs frá 1. janúar 2016.
Árni Már lauk B.Sc. gráðu í hjúkrun frá Háskóla Íslands árið 2006 og diplómanámi í gjörgæsluhjúkrun í Kaupmannahöfn árið 2011.
Á námsárunum starfaði Árni á geðdeild Landspítala en eftir útskrift réði hann sig á gjörgæsluna í Fossvogi þar sem hann starfaði í tvö ár. Á árunum 2008-2013 var hann á gjörgæsludeild á Bispebjerg Hospital í Kaupmannahöfn. Undanfarið hefur hann verið sjálfstætt starfandi hjúkrunarfræðingur og hefur unnið á ýmsum gjörgæsludeildum í Noregi í gegnum starfsmannaleigu en réði sig á Landspítala aftur síðastliðið haust