„Þessa dagana eru 495 nemar í starfsnámi hjá okkur. Þetta eru nemar í læknisfræði, hjúkrunarfræði, lífendafræði, geislafræði, sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun, svo einhverjir séu nefndir. Í gær kom hluti þessa hóps í K-byggingu í vísindaheimsókn. Það er spítalanum mikilvægt að þessu framtíðarfólki líði vel hjá okkur og það finni sig velkomið.“
„Frá því í sumar hefur starfsfólk Landspítala unnið að undirbúningi aðgerðaráætlunar ef grunur vakni um ebólasmit á Íslandi. Komi til þess að flytja þurfi smitaðan einstakling frá V-Afríku vonumst við eftir samstarfi við önnur ríki á Norðurlöndum sem eru betur í stakk búin að taka á móti þessum sjúklingum. Hins vegar er nauðsynlegt að búa spítalann undir að til þess gæti komið að til okkar leitaði einstaklingur sem útsettur hefði verið fyrir ebólu enda ferðalög tíð.“
Háskólahlutverkið og undirbúningur aðgerðaráætlunar til að bregðast við ef grunur vaknar um ebólasmit á Íslandi er meðal þess sem fjallað er um í forstjórapistli.