Átröskunarteymi Landspítala verður með kynningarfund á Hvítabandinu við Skólavörðustíg miðvikudaginn 16. mars 2011 frá kl. 16:30 - 18:00.
Á fundinum mun starfsfólk átröskunarteymis Landspítala kynna sig, starfsemi teymisins og áherslur í meðferðinni. Sagt verður frá þeirri þjónustu sem er í boði á dag- og göngudeild. Dagdeildarskipulagið verður kynnt sérstaklega eins og það er verður fram á sumar.
Á fundinum verður kynnt námskeið sem verður í boði fyrir aðstandendur. Námskeiðið hefst 23. mars og verður í 5 skipti, á miðvikudögum milli kl. 16:30 og 18:00.
Fólki gefst kostur á að skrá sig á námskeiðið á fundinum eða síðar hjá ritara Hvítabandsins (fyrir hádegi).
Opið verður fyrir umræður og spurningar í lok fundar.