Blæðara- og storkumeinamiðstöð

Á Blæðara- og storkumeinamiðstöð fer fram greining, skráning og meðhöndlun sjúklinga með blæðingasjúkdóma, s.s. dreyrasýki, von Willebrand sjúkdóm og Bernard Soulier sjúkdóm. Starf miðstöðvarinnar byggir á starfi lækna og hjúkrunarfræðinga. Fræðsla er veitt til sjúklinga, aðstandenda svo og til ýmissa aðila er koma að blæðurum, s.s. kennara og leikskólakennara.

Á dagvinnutíma virka daga, frá kl. 8:00-16:00, er ætíð hægt að ná í hjúkrunarfræðing og lækni miðstöðvarinnar. Símanúmer hjúkrunarfræðings er 824 5414. Einnig er hægt að leggja skilaboð til skrifstofustjóra í síma 543 5010.

Meðferð barna og unglinga undir 18 ára aldri er í samvinnu við lækna og hjúkrunarfræðinga Barnaspítala Hringsins, sími 543 3700.
Síðast breytt: 05.06.2009 22:10
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli