Segulómun
Hvað er segulómun?
Segulómun eða MRI (Magnetic Resonance Imaging) er myndgreiningaraðferð sem byggir m.a. á segulsviði, útvarpsbylgjum og loftneti við myndatökur af líkamanum. Segulómun er rannsóknaraðferð sem fer sívaxandi vegna hæfni til að skoða mjúkvefi líkamans, ekki síst heila og mænu, taugar, vöðva, liðbönd og liðbrjósk en aðferðin er notuð til rannsókna á flestum líkamshlutum og líffærakerfum. Segulómun býr til sneiðmyndir sem hægt er að skoða í öllum mögulegum sniðum, tví- og þrívídd.
Undirbúningur fyrir rannsókn
Undirbúningur fer eftir því hvað á að rannsaka. Einungis fyrir rannsókn af kviðarholi (lifur, nýru, smáþarmar/ristill) þarf að fasta í 4 klst. en taka samt inn öll regluleg lyf. Fyrir aðrar rannsóknir (heili, hryggur, hné o.fl.) má borða eðlilega. Áður en rannsókn hefst er mikilvægt að taka af sér alla málmhluti s.s. úr, skartgripi, fjarlægja hárspennur o.þ.h. Greiðslukort og önnur skilríki með segulrönd geta eyðilagst inn í rannsóknarherberginu. Einnig þarft þú að fara úr fatnaði með málm í og fara í slopp frá spítalanum á meðan rannsókn stendur en mátt klæðast eigin fatnaði t.d. íþróttagalla ef engar málmsmellu eða málmrennilásar eru á þeim. Geislafræðingur fer yfir gátlista með þér til að tryggja öryggi þitt í rannsókn. Ef þú þjáist af innilokunarkennd er þér bent á að hafa samband við geislafræðing á segulómun fyrir rannsókn og fá viðeigandi undirbúning, ef þörf er á.
Ert þú barnshafandi?
Reynt er að komast hjá því að mynda barnshafandi konur í segulómun, sérstaklega á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu. Mikilvægt er að láta geislafræðing eða lækni vita ef um mögulega þungun er að ræða.
Framkvæmd rannsóknar
Geislafræðingur framkvæmir rannsókn. Í rannsóknarherberginu leggst þú á rannsóknarbekk, loftnet er sett yfir og/eða undir þann hluta líkamans sem á að rannsaka og þér er rennt inn í segulómtækið sem er tiltölulega bjart og opið í báða enda. Segulómun er viðkvæm fyrir allri hreyfingu og því er mikilvægt að vera kyrr á meðan myndatöku stendur. Segulómrannsókn tekur 15 mín. til 1 klst. en tímalengd fer eftir því hvað er verið að rannsaka. Töluverður hávaði er í segulómtækinu á meðan rannsókn fer fram. Af þeim sökum er boðið upp á eyrnatappa eða heyrnartól svo þú getir hlustað á útvarp eða geisladisk meðan á rannsókn stendur (mátt gjarnan taka með þér geisladisk). Geislafræðingar fylgjast vel með þér í rannsókn bæði í myndavél og kallkerfi. Myndatakan er sársaukalaus og án aukaverkana.
Skuggaefni
Við segulómrannsókn þarf í völdum tilfellum að gefa gadólíníum skuggaefni í bláæð. Aukaverkanir eru tiltölulega sjaldgæfar og þá langoftast vægar. Konur með börn á brjósti mega halda brjóstagjöf áfram eftir rannsókn með gadólíníum skuggaefni.