Sjúkraliðar á geðgjörgæslu 32C
Sjúkraliðar óskast til starfa með okkur á geðgjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut. Við leitum að metnaðarfullum sjúkraliðum sem hafa áhuga á að starfa með fólki með bráðan geðrænan vanda. Á geðgjörgæslu 32C er veitt sérhæfð þjónusta í meðferð og umönnun einstaklinga með bráð geðræn einkenni. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar og hugmyndafræði um geðgjörgæslu eru í fyrirrúmi.
Á deildinni starfa um 50 einstaklingar í þverfaglegu meðferðarteymi. Vinnuandinn einkennist af samvinnu, lipurð, stuðningi, metnaði og góðum liðsanda. Spennandi vettvangur fyrir sjúkraliða sem hafa áhuga á að dýpka þekkingu sína í geðhjúkrun. Boðið verður upp á einstaklingshæfða aðlögun. Upphafstími ráðningar er frá 15. nóvember 2025 eða skv. nánara samkomulagi. Starfið er í vaktavinnu og er starfshlutfall 80-100%.
- Hjúkrun, umönnun og stuðningur við einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
- Virk þátttaka í teymisvinnu
- Stuðlar að öryggi sjúklinga og starfsfólks með því að framfylgja verklagi og vera virkur þátttakandi í varnarteymi geðsviðs
- Hefur umsjón með ýmsum störfum sem snúa að daglegum rekstri deildar
- Stuðlar að góðum starfsanda
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Áhugi á hjúkrun fólks með geðræn einkenni
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Framúrskarandi samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Reynsla af stuðningi við fólk með geðrænar áskoranir er kostur
- Íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 3/5,