Yfirlæknir sérnámslækna á skurðlækningaþjónustu
Starf yfirlæknis sérnámslækna á skurðlækningaþjónustu á Landspítala er laust til umsóknar. Yfirlæknir er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi; þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð.
Starfið felst í því að vera yfirlæknir sérnámslækna, annara námslækna og lækna með lækningaleyfi sem starfa á sérgreinum skurðlækninga á Landspítala. Ásamt því að bera ábyrgð á skipulagi klínískrar vaktaþjónsutu ofan nefndra lækna fyrir sérgreinar skurðlækninga. Næsti yfirmaður er forstöðulæknir sérgreina skurðlækninga.
Leitað er eftir sérfræðilækni með víðtæka reynslu af utanumhaldi náms og lækna í framhaldssérnámi samhliða klínískri vinnu, hæfni til að vera í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, umbótastarf, vinnuskipulag, öryggismál og uppbyggingu mannauðs í nánu samstarfi við forstöðulækni, framkvæmdastjóra og annað samstarfsfólk.
Starfshlutfall er 50% og veitist starfið frá 1. janúar 2026 eða samkvæmt samkomulagi.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfa fyrir sérnámslækna á skurðlækningaþjónustu, þ.m.t. kennslumál og vísindastarf
- Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði einingarinnar
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á einingunni
- Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar
- Íslenskt sérfræðileyfi í einni af sérgreinum skurðlækninga; almennum skurðlækningum, kviðarholsskurðlækningum, bæklunarskurðlækningum, þvagfæraskurðlækningum, háls- nef og eyrnalækningum, heila- og taugaskurðlækningum, æðaskurðlækningum, lýtalækningum, brjóstaskurðlækningum, barnaskurðlækningum eða brjóstholsskurðlækningum
- Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
- Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð
- Víðtæk reynsla af kennslu, vinnuskipulagi klínískrar vaktþjónustu og utanumhaldi lækna í sérnámi og sýn til framtíðar á þeim sviðum
- Hæfni í mannlegum samskiptum, teymisvinnu og samvinnu við samstarfsfólk sem stuðlar að sálrænu öryggi á vinnustaðnum
- Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar, auk frumkvæði og metnaðar til að ná árangri
- Mjög góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum.
- Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á).
- Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum.
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum.
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.
- Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni.
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, yfirlæknir, sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,