Hjúkrunarnemar 3. og 4. árs á hjarta-, lungna- og augnskurðdeild og nýrnalækningadeild
Laus eru til umsóknar störf hjúkrunarnema á 3. og 4. námsári á 12G við Hringbraut. Við viljum ráða metnaðarfulla hjúkrunarnema með áhuga á hjúkrun hjarta-, lungna-, nýrna- og augnsjúklinga. Unnið er í vaktavinnu og eru störfin laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Um er að ræða hlutastörf með námi með möguleika á áframhaldandi sumarstarfi eða starfi sem hjúkrunarfræðingur að námi loknu. Unnið er í vaktavinnu. Starfshlutfall og upphaf starfa er samkomulag.
Á deildinni starfar öflugur og áhugasamur hópur starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og veita góða einstaklingshæfða aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Hjúkrun sjúklinga í samvinnu við aðra fagaðila
- Bera ábyrgð á að framfylgja fyrirfram ákveðnum verkferlum fyrir sjúklinga sem farið hafa í hjarta-, lungna- og augnskurðaðgerðir eða eru í kvið- eða blóðskilun
- Þátttaka í teymisvinnu
- Staðfesting á námi í hjúkrunarfræði
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni
- Sveigjanleiki í starfi
- Íslenskukunnátta
- Stundvísi
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarnemi, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 3/5