Aðstoðarmaður deildarstjóra geðrofs- og samfélagsgeðteymis
Hefur þú ánægju af því að vinna með fólki að sameiginlegum markmiðum?
Við leitum að skipulögðum einstaklingi sem hefur yfirsýn, frumkvæði og brennur fyrir jákvæðri vinnustaðamenningu. Starf aðstoðarmanns deildarstjóra er lifandi og fjölbreytt starf þar sem enginn dagur er eins. Starfið hentar vel þeim sem hafa áhuga á utanumhaldi margþættra verkefna og felur meðal annars í sér þátttöku í umbótastarfi, auk víðtækra samskipta við starfsfólk og stjórnendur. Viðkomandi mun vinna náið með deildarstjóra og öðrum stjórnendum teymis.
Meginverkefni geðrofs-og samfélagsgeðteymis er að veita fólki sem greinst hefur með alvarlega geðsjúkdóma og aðstandendum þeirra þverfaglega og einstaklingsmiðaða þjónustu. Þjónustan byggir á batamiðaðri hugmyndafræði og skaðaminnkandi nálgun. Markmið meðferðarinnar er að stuðla að bata, rjúfa félagslega einangrun og auka virkni og lífsgæði í daglegu lífi. Starfsemin er í stöðugri þróun og lögð er áhersla á virkt umbótastarf. Í teyminu starfa læknar, hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar, sálfræðingar, atvinnuráðgjafar, jafningjar og málastjórar með fjölbreyttan bakgrunn.
Við vinnum saman af heilum hug og fögnum nýjum röddum, sjónarhornum og hugmyndum.
Starfshlutfall er 60-100% og er starfið laust nú þegar eða eftir nánara nánara samkomulagi. Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Eygló Einarsdóttur, deildarstjóra.
- Daglegur stuðningur við starfsemi teymisins, þar með talið símsvörun, upplýsingagjöf og úrlausn daglegra viðfangsefna
- Umsjón með Vinnustund
- Þátttaka í ýmsum mannauðstengdum verkefni svo sem ráðningum og móttöku nýs starfsfólks og nema, og undirbúningi orlofs
- Yfirsýn hvað varðar þjálfun og endurmenntun starfsfólks
- Ýmis sérhæfð verkefni sem tengjast umbótastarfi, samskiptum og samhæfingu eins og að halda utan um fræðslu, starfsdaga, fundi og aðra viðburði
- Ritun og úrvinnsla fundargerða og annarra gagna sem tengjast starfseminni
- Önnur verkefni að beiðni deildarstjóra
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Starfsreynsla sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af starfi á Landspítala er kostur
- Örugg framkoma, og mikil færni í mannlegum samskiptum
- Skipulagshæfni, frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
- Jákvæðni og sveigjanleiki
- Mjög góð almenn tölvukunnátta
- Færni í greiningu, meðferð og framsetningu tölulegra upplýsinga og góð Excel kunnátta
- Reynsla af notkun gervigreindar í starfi er kostur
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, aðstoðarmaður, verkefnastjóri, teymisvinna, mannauðsmál, mannauður,
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 4/5