Kennslustjóri gæða- og umbótamála sérnámslækna
Laust er til umsóknar hlutastarf kennslustjóra gæða- og umbótamála sérnámslækna við Landspítala. Kennslustjóri er leiðtogi og ber ábyrgð á gæða- og umbótaþjálfun sérnámslækna en jafnframt stöðugum umbótum sérnáms í öllum sérgreinum. Meginhlutverk er að framkvæma og vinna úr niðurstöðum úttekta á að sérnám lækna á Landspítala sé veitt innan öruggs starfsumhverfis og uppfylli sett gæðaviðmið.
Kennslustjóri vinnur í nánu samstarfi við, yfirlækna, kennslustjóra, sérnámslækna og annað samstarfsfólk. Kennslustjóri hefur aðgang að skrifstofu sérnáms og mannauðsteymi sérnámslækna. Næsti yfirmaður er yfirlæknir sérnáms.
Leitað er eftir sérfræðilækni með víðtæka reynslu og hæfni til að vera í forystu fyrir gæða- og umbótamál sérnámslækna. Um er að ræða 20% starfshlutfall og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.
- Framkvæma og vinna úr niðurstöðum úttekta á að sérnám lækna á Landspítala sé veitt innan öruggs umhverfis og uppfylli sett gæðaviðmið
- Leiðandi hlutverk í umbótaþjálfun sérnámslækna
- Afmörkuð umbótaverkefni tengd sérnámi lækna
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann
- Íslenskt sérfræðileyfi í lækningum
- Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar, auk frumkvæðis og metnaðar til að ná árangri
- Áhugi og reynsla af kennslu og klínískri þjálfun lækna
- Afburða hæfni í mannlegum samskiptum, teymisvinnu og samvinnu við samstarfsfólk
- Æskilegt er að kennslustjóri hafi klínískar starfsskyldur við starfseiningu sem samþykkt er til sérnáms af mats- og hæfisnefnd í sinni sérgrein
- Æskilegt er að kennslustjóri hafi lokið viðeigandi þjálfun í handleiðslu
- Góð íslensku- og enskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðilar
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af námsgögnum og starfsleyfum ef umsækjandi er ekki þegar í starfi á Landspítala þar sem gögnin liggja fyrir.
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum.
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið.
- Yfirlit yfir birtar vísindagreinar (eða í ritrýni) sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur sem uppfylla hæfnikröfur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5