Starfsmaður á lager á skurðstofum við Hringbraut
Ertu skipulagður og með góða tölvukunnáttu?
Við óskum eftir starfsmanni á lager á skurðstofum Landspítala við Hringbraut í teymi sem hefur umsjón með skurðstofulager. Við leitum að starfsmanni sem hefur gaman að skipuleggja, hefur mjög góða tölvukunnáttu og á gott með að vinna með gögn og er tilbúin að móttaka og ganga frá lagervörum.
Unnið er í dagvinnu, frá kl. 07:30-15:30 og er starfið er laust eftir samkomulagi. Starfshlutfall er 100%.
Á skurðstofum Landspítala við Hringbraut eru 11 skurðstofur sem þjóna 7 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 10 þúsund aðgerðir. Á deildinni starfa um 90 einstaklingar; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi á báðum starfseiningum. Í boði er einstaklings aðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Ábyrgð og umsjón með pöntunum á lager og skráning í lagerkerfi
- Umsjón með daglegu skipulagi og umgengni á lager, vörumóttaka og frágangur vara
- Tryggir skilvirka ferla á vörum og að unnið sé samkvæmt verklagsreglum og stuðlar að hagkvæmni í rekstri
- Umsjón með tiltektum fyrir skurðaðgerðir
- Samskipti og samvinna við birgðastöð, innlenda birgja og dauðhreinsun
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu
- Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Hæfni til að vinna í teymi
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
- Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérhæfður starfsmaður, þjónustustörf, lagerstörf, skrifstofustarf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5