Skrifstofumaður - Líknarlækningar
Við sækjumst eftir öflugum skrifstofumanni til fjölbreyttra og sérhæfðra starfa á skrifstofu líknarlækninga í Kópavogi. Starfið felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt og krefjandi verkefni. Unnið er í teymi með sérfræðilæknum í líknarlækningum og öðru starfsfólki einingarinnar og er heilbrigðisgagnafræðingur þjónustunnar mikilvægur hluti teymisins.
Deildin heyrir undir krabbameinsþjónustu Landspítala og samanstendur af 12 rúma legudeild, göngudeild, sérhæfðri líknarheimaþjónustu (HERA) og líknarteymi sem veitir ráðgjöf innan og utan spítalans. Líknarmiðstöð Landspítala heyrir einnig undir starfsemi líknarþjónustunnar, en miðstöðin hefur það hlutverk að veita fræðslu, sinna kennslu, rannsóknum og framþróun í faginu.
Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í dagvinnu og er starfið laust frá 1. október 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Umsjón og skráning gagna í Heilsugátt og almenn skrifstofustörf
- Þátttaka i teymisvinnu
- Skipuleggja og hafa yfirsýn yfir fundi, vinnustofur og aðra viðburði innan sérgreinarinnar
- Svörun ráðgjafarsíma í samvinnu við hjúkrunarfræðing og sérfræðilækna
- Upplýsingagjöf og samskipti við sjúklinga, starfsfólk og stofnanir
- Þátttakandi í þróun upplýsingatækni við ritun í rafræna sjúkraskrá þjónustunnar
- Vinna að verkefnum tengdum klínískri skráningu
- Samvinna og samstarf við aðrar sérgreinar
- Ýmis verkefni fyrir sérfræðinga og fagfólk sérgreinarinnar
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Starfsreynsla úr tengdri starfsemi er kostur
- Öguð, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Gott vald á íslensku og ensku
- Góð tölvuþekking og færni í helstu tölvuforritum
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, skrifstofumaður, skrifstofustörf, ritari, teymisvinna
Íslenska 4/5, enska 4/5