Háskólamenntaður starfsmaður í náttúruvísindum á Sýkla- og veirufræðideild
Við sækjumst eftir jákvæðum, sjálfstæðum og metnaðarfullum einstaklingi til starfa á sýkla- og veirufræðideild. Deildin heyrir undir rannsóknarþjónustu og fara þar fram greiningar, vísindarannsóknir, ráðgjöf og kennsla heilbrigðisstétta í faginu.
Á deildinni starfa yfir 95 manns í þverfaglegu teymi og veita fjölbreytta og umfangsmikla þjónustu allan sólarhringinn við greiningar sýkinga af völdum baktería, veira, sveppa og sníkjudýra, auk rannsókna, ráðgjafar og kennslu heilbrigðisstétta í sýkla- og veirufræði.
Góður starfsandi er ríkjandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum á deildinni. Við tökum vel á móti nýju sanstarfsfólki. Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
- Vinna við þjónusturannsóknir á sjúklingasýnum
- Sérhæfð verkefni, eftir atvikum, sem heyra undir starfsemi deildarinnar
- Virk þátttaka í gæðastarfi
- Vinna við upplýsingakerfi deildarinnar
- Stuðla að góðri þjónustu
- Háskólapróf í náttúruvísindum ásamt íslensku starfsleyfi s.s. lífeindafræði, náttúrufræði, sameindalíffræði, líftækni eða sambærilegt
- Reynsla af vinnu við bakteríuræktanir og greiningar, er kostur
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð skipulagshæfni, frumkvæði, sjálfstæði og öguð vinnubrögð
- Jákvætt viðmót, lipurð í samskiptum og fagleg framkoma
- Hæfni til að starfa í teymi
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, náttúrufræðingur, lífeindafræðingur, rannsóknir, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5