Aðstoðarmaður sjúkraþjálfara og móttaka í Sjúkraþjálfun á Landspítala við Hringbraut
Vilt þú verða hluti af góðri liðsheild í Sjúkraþjálfun á Landspítala við Hringbraut? Við leitum eftir áhugasömum einstaklingi í fjölbreytt starf sem felur í sér bæði aðstoðar sjúkraþjálfara í þjálfun sjúklinga og ýmis ritarastörf tengd daglegum rekstri í móttöku. Starfið er unnið í nánu samstarfi við annan aðstoðarmann og sjúkraþjálfara á deildinni. Starfshlutfall er 80-100% og unnið er í dagvinnu.
Í Sjúkraþjálfun við Hringbraut starfar samstilltur hópur þar sem góður starfsandi og vinnugleði eru í fyrirrúmi. Á deildinni starfa um 20 einstaklingar sem sinna fjölbreyttri endurhæfingu meðal annars fyrir einstaklinga með hjartasjúkdóma, krabbamein, eftir skurðaðgerðir og aðra sem þarfnast almennrar endurhæfingar eftir veikindi.
Við leggjum áherslu á gott og styðjandi starfsumhverfi þar sem nýtt starfsfólk fær góða aðlögun og stuðning frá samstarfsfólki. Vellíðan starfsfólks er í forgrunni og lögð er áhersla á jákvætt starfsumhverfi.
Boðið er upp á 36 stunda vinnuviku í 100% starfi með það að markmiði að stuðla að betri heilsu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs, með bættri nýtingu vinnutíma og gagnkvæmum sveigjanleika sem nýtist bæði starfsfólki og vinnustaðnum. Einnig eru í boði samgöngusamning og önnur starfstengd fríðindi.
- Eftirlit með sjúklingum í tækjasal
- Aðstoðar sjúkraþjálfara og sjúklinga í þjálfun
- Móttaka og skráning
- Pöntun aðfanga, símavarsla og almenn ritarastörf
- Umsjón með vinnusvæði: létt þrif á tækjum og umsjón með rekstrarvörum
- Önnur tilfallandi verkefni
- Jákvætt viðmót, frumkvæði og góð samskiptahæfni
- Hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í hóp
- Skipulagshæfni og metnaður í starfi
- Almenn tölvukunnátta
- Góð kunnátta í íslensku
- Reynsla af umönnun er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréf. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, aðstoðarmaður, móttaka, sjúkraþjálfun, endurhæfing
Tungumálahæfni: íslenska 3/5