Starfsmaður í býtibúr á taugalækningadeild
Taugalækningadeild í Fossvogi óskar eftir að ráða jákvæðan og þjónustulundaðan einstakling tl starfa í býtibúr. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og eiga auðvelt með að vinna í teymi.
Starfið laust frá 1. september 2025. Starfshlutfall er 50% og er vinnutími aðra hvora helgi (fös-sun). Unnið er frá kl. 8-16 eða frá kl. 12-20, aðrar vaktir samkvæmt samkomulagi. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða aðlögun.
Taugalækningadeild þjónar sjúklingum með taugasjúkdóma og starfa þar um 60 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Lögð er áhersla á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra. Góður starfsandi er ríkjandi og vinnum við markvisst að því að gera deildina okkar betri.
- Starf í býtibúri
- Aðstoð við máltíðir sjúklinga
- Pantanir og frágangur á vörum
- Önnur tilfallandi störf í samráði við deildarstjóra
- Góð samskiptahæfni
- Þjónustulund og jákvæðni
- Sjálfstæði, skipulögð og öguð vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérhæfður starfsmaður, þjónustustörf, almenn störf , eldhússtörf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5