Sjúkraliði á kvenlækningadeild 21A
Sjúkraliði óskast til starfa á kvenlækningadeild 21A Landspítala. Á deildinni starfar samhent teymi starfsfólks sem veitir fjölþætta heilbrigðisþjónustu allan sólarhringinn. Deildin er annars vegar göngudeild, bráðamóttaka og aðgerðarstofa og hins vegar dag- og legudeild. Deildin sinnir skjólstæðingum með góðkynja og illkynja sjúkdóma í grindarholi og brjóstum sem og skjólstæðingum frá öðrum sérgreinum almennra skurðlækninga. Þá sinnir deildin bráðatilvikum vegna kvensjúkdóma utan opnunartíma bráðaþjónustu kvennadeilda.
Í boði er spennandi, krefjandi og líflegt starfsumhverfi, góður starfsandi og fjölbreytt tækifæri til faglegrar þróunar. Vinnufyrirkomulag er vaktavinna 60-100%. Starfið er laust frá 1. september 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
- Hjúkrun sjúklinga fyrir og eftir aðgerðir
- Umönnun og eftirlit aðgerðarsjúklinga, undirbúningur þeirra og fyrirbygging fylgikvilla
- Umönnun annarra sjúklinga á deild með ýmis vandamál í kvenlíffærum
- Virk þátttaka í teymis- og umbótastarfi
- Aðstoð á göngudeild/bráðamóttöku eftir þörfum
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Faglegur metnaður, frumkvæði og ábyrgð í starfi
- Jákvætt viðmót, sveigjanleiki og góðir samskiptahæfileikar
- Reynsla í starfi sjúkraliða æskileg
- Hæfni og geta til að starfa í teymi
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 700 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði
Tungumálahæfni: íslenska 4/5