Starf í þjónustumiðstöð heilbrigðis- og upplýsingatækni
Við leitum að lausnamiðuðum og jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund í teymið okkar. Um er að ræða tímabundna stöðu til eins árs vegna afleysinga. Hlutverk teymisins er að veita öðru starfsfólki spítalans þjónustu á sviði heilbrigðis- og upplýsingatækni. Við aðstoðum notendur í gegnum síma, leysum mál á vettvangi, ráðleggjum með búnað, veitum aðgang að kerfum og grúskum í flóknum málum sem upp koma.
Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi enda rekur Landspítali eitt stærsta og flóknasta tækniumhverfi landsins. Starfshlutfall er 100% og um dagvinnutíma er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Hjá þjónustumiðstöð starfa 37 einstaklingar, en deildin er hluti af þróunarsviði sem ber ábyrgð á tölvubúnaði og tölvukerfum spítalans ásamt öllum lækningatækjabúnaði.
Hlutverk þróunarsviðs er að styðja sem best við starfsemi spítalans með tæknilausnum og leiða stafræn framþróunarverkefni sem miða að hærra þjónustustigi og aukinni skilvirkni.
- Tækni- og notendaþjónusta í síma og á vettvangi
- Greining og úrlausn erinda í beiðnakerfum
- Þátttaka í innra umbótastarfi og tilfallandi verkefnum
- Þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum
- Greiningarhæfni, sjálfstæð og lausnarmiðuð vinnubrögð
- Mjög góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg
- Þekking á Microsoft umhverfi
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
- Gott vald á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, kerfisfræðingur, tölvunarfræðingur
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 3/5