Skurðhjúkrunarfræðingur á göngudeild augnsjúkdóma
Landspítali - Eiríksgata 5
Við sækjumst eftir skurðhjúkrunarfræðingi í spennandi dagvinnustarf á göngudeild augnsjúkdóma. Göngudeildin er miðstöð augnsjúkdóma á Íslandi og samanstendur af göngudeild, dagdeild og sérhæfðum skurðstofum.
Hvað býðst þér?
Fjölbreytt og tæknilegt starf þar sem þú:
- Starfar á sérhæfðum skurðstofum við augnaðgerðir
- Færð einstaklingsmiðaða starfsþjálfun og skipulagða fræðslu
- Getur fengið stuðning við frekari starfsþjálfun með námsheimsókn eða sérnám í augnhjúkrun erlendis
- Starfar í sérhæfðu umhverfi, í þverfaglegu samstarfi þar sem ríkir góður starfsandi
Vinnuskilyrði:
- Dagvinna, allt að 100% starfshlutfall (60-100%)
- 36 stunda vinnuvika í fullri dagvinnu
- Betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs
- Skurðhjúkrun: Hjúkrun aðgerðarsjúklinga og aðstoð við augnaðgerðir og lyfjagjafir í augu
- Móttökuþjónusta: Fræðsla, forskoðanir, sjónmælingar, sjónsviðsmælingar og augnbotnamyndatökur
- Undirbúningur aðgerða og önnur tilfallandi verkefni
Nauðsynlegt:
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Viðbótarnám í skurðhjúkrun
- Góða íslenskukunnáttu
Við metum:
- Reynslu af skurðhjúkrun
- Faglegan metnaður og frumkvæði
- Góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhuga á þróun verkferla og gæðaverkefna
- Reynslu af hjúkrun augnsjúklinga
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, dagvinna
Tungumálahæfni: Íslenska 4/5