Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á Laugarásnum meðferðargeðdeild
Áhugasamur og metnaðarfullur ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi óskast til starfa á Laugarásnum meðferðargeðdeild í geðþjónustu Landspítala. Laugarásinn er sérhæfð deild fyrir ungt fólk með geðrofssjúkdóm á byrjunarstigi. Þar er unnið fjölbreytt og sérhæft starf í snemmíhlutun geðrofssjúkdóma fyrir einstaklinga á aldrinum 18-35 ára. Á deildinni eru 8 sólarhringspláss en að stærstum hluta er starfsemi deildarinnar dagdeild þar sem um 100 einstaklingar sækja þjónustu.
Starfsemi Laugarássins er í stöðugri þróun og er áhersla lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu og virkt samstarf við aðstandendur. Á deildinni starfa um 40 manns og einkennist samstarfið af þverfaglegri nálgun, krefjandi greiningarvinnu og góðum starfsanda. Sérstök áhersla lögð á starfsþróun, m.a. fær starfsfólk þjálfun og handleiðslu í áhugahvetjandi samtalstækni og grunnþáttum hugrænnar atferlismeðferðar. Einnig er lagt mikið upp úr fræðslu og handleiðslu starfsmanna. Mikið er lagt upp úr virku umbótastarfi og lögð er áhersla á virka þátttöku starfsfólks þegar kemur að því að þróa og bæta þjónustuna.
Óskað er eftir ráðgjöfum í 70-100% starf, að mestu/ eingöngu á næturvaktir. Ráðning er frá 15. ágúst 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Lilju Dögg deildarstjóra.
- Vinna með ungum einstaklingum með byrjandi geðrofssjúkdóm
- Samskipti, hvatning, leiðbeiningar og víðtækur stuðningur
- Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi
- Ýmis fjölbreytt og mikilvæg verkefni sem starfsemi deildarinnar felur í sér
- Menntun sem nýtist í starfi
- Starfsreynsla af sambærilegum störfum er kostur
- Góð samstarfshæfni, færni í samskiptum, skapandi hugsun og frumkvæði í starfi, stundvísi og reglusemi
- Jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa við endurhæfingu ungra einstaklinga
- Góð almenn tölvukunnátta og færni í mæltu og rituðu máli
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði, önnur tungumálakunnátta er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. ngum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, ráðgjafi, stuðningsfulltrúi, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5