Lífeindafræðingur eða náttúrufræðingur
Lífeindafræðingur, líffræðingur eða einstaklingur með sambærilega háskólamenntun óskast til starfa á Ónæmisfræðideild Landspítala. Á deildinni starfa um 30 einstaklingar við þjónusturannsóknir, greiningar og ráðgjöf, kennslu heilbrigðisstétta í ónæmisfræði og vísindarannsóknir. Góður starfsandi er ríkjandi og tækifæri til að vaxa í starfi.
Meginhlutverk deildarinnar er að vera leiðandi hvað varðar rannsóknir, greiningu, meðferð og eftirlit með ónæmis- og ofnæmissjúkdómum á Íslandi. Auk þess er deildin alhliða þjónusturannsóknastofa á sviði gigtar-, bólgu-, ofnæmis- og sjálfsofnæmissjúkdóma.
Við viljum ráða samviskusaman og skipulagðan einstakling sem er með faglegan metnað og vinnur af nákvæmni. Viðkomandi þarf að hafa góða samskiptahæfni og eiga auðvelt með að vinna sjálfstætt og í teymum. Ónæmisfræðideildin tekur vel á móti nýju fólki og við veitum góða einstaklingsmiðaða aðlögun. Starfshlutfall er 100% og um dagvinnu er að ræða. Starfið er laust frá og með 1. júní 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið með styttri vinnuviku er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Bera ábyrgð á daglegum rekstri frumuflæðisjáreiningar sem sér um þjónusturannsóknir á sjúklingasýnum og taka þátt í uppbyggingu og þróun einingarinnar.
- Framkvæma þjónusturannsóknir á frumuflæðisjá (FACS).
- Framkvæma þjónusturannsóknir á Luminex tæki.
- Þróun og uppsetning nýrra greiningaprófa tengdum ónæmissjúkdómum innan einingarinnar.
- Þátttaka í kennslu, fræðslu og vísindarannsóknum deildarinnar.
- Aðstoð við frumuflæðisjá og sorter tæki í þjónustu við Lífvísindasetur hjá Háskóla Íslands.
- Stuðla að góðri þjónustu.
- Íslenskt starfsleyfi.
- Sjálfstæði, skipulagshæfni og yfirsýn í starfi.
- Nákvæmni í vinnubrögðum og faglegur metnaður.
- Góð samskiptahæfni og fagleg framkoma.
- Hæfni og geta til að starfa í teymi.
- Framhaldsmenntun, masters- eða doktorsgráða, í ónæmisfræði.
- Sérfræðikunnátta á sviði frumuflæðsjárvinnu.
- Reynsla í notkun Luminex tækja er kostur.
- Mikil þekking og reynsla í notkun forritanna FACSuite, FACSDiva, FACSChorus og Workflow manager.
- Reynsla í notkun rannsóknastofukerfisins GLIMS er kostur.
- Reynsla og hæfni til að setja upp ný greiningarpróf.
- Reynsla af kennslu, vísinda- og nýsköpunarstörfum og gerð styrkumsókna.
- Mjög góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Lífeindafræðingur, líffræðingur, rannsóknir, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5