Almennur læknir - Hefur þú áhuga á skurðlækningum?
Við sækjumst eftir almennum læknum sem hafa áhuga á að auka þekkingu sína á skurðlækningum. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 1. júní eða eftir samkomulagi, til 6 mánaða með möguleika á framlengingu.
Starfið veitir góða þekkingu á meðferð sjúkdóma sem þarfnast skurðaðgerða sem og áverka. Reynsla sem nýtist vel þeim sem stefna á starf í heimilislækningum, bráðalækningum eða áframhaldandi sérnám í skurðlækningum.
Á skurðdeildum starfar öflugur hópur sérfræðilækna og sérnámslækna í þverfaglegu teymi. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða aðlögun með kynningu á verklagi og verkferlum.
- Þjálfun í skurðlækningum með þátttöku í klínísku starfi á göngu-, legu- og skurðdeild
- Dagvaktir sem ráðgefandi fyrir bráðamóttöku og aðrar deildir Landspítala undir handleiðslu sérfræðinga
- Kvöld- og helgarvaktir í teymi sérnámslækna og sérfræðilækna
- Þátttaka í kennslu kandídata, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsmanna eftir því sem við á
- Þátttaka í vísindastarfi, þróunar- og gæðaverkefnum eftir því sem við á
- Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi, sem samþykkt hefur verið af kennsluráði sérnámsgrunns, við upphaf starfs
- Íslenskt lækningaleyfi
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Öguð vinnubrögð
- Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, læknir, læknir með lækningaleyfi