Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi - Spennandi störf á lungnadeild Fossvogi
Ertu góður liðsmaður og langar þig að starfa í starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi?
Við leitum eftir sjúkraliðum og sjúkraliðanemum í starfsnámi í okkar góða lið. Við sækjumst bæði eftir reynslumiklum sem og nýútskrifuðum. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulagsatriði og eru störfin laus frá 1. júní 2025 eða eftir samkomulagi.
Lungnadeild er bráðalegudeild með hágæslurýmum og eina sérhæfða lungnadeildin á landinu. Þjálfun og fræðsla er í fyrirrúmi á deildinni og mörg námstækifæri. Á deildinni starfa um 70 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Starfsandi á deildinni er mjög góður og tekið vel á móti nýju samstarfsfólki. Við leggjum okkur fram við að þjónustan við skjólstæðinga okkar sé til fyrirmyndar, öryggi þeirra sé tryggt og að þeim sé sýnd hlýja og umhyggja.
- Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
- Þátttaka í fjölskylduhjúkrun
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Íslenskt starfsleyfi sjúkraliða/ vottun um launað starfsnám
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
- Faglegur metnaður og áhugi á að öðlast færni í hjúkrun sjúklinga með lungnasjúkdóma og annarra sem á deildinni dvelja
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
- Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,