Sérfræðilæknir í háls-, nef- og eyrnalækningum
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í háls-, nef- og eyrnalækningum á skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu Landspítala. Starfshlutfall er 60% og veitist starfið frá 1.september 2025 eða eftir nánari samkomulagi. Leitað er eftir jákvæðum og metnaðarfullum sérfræðilækni, með viðbótarþekkingu í eyrnaskurðlækningum til að annast sérhæfða meðferð og eftirfylgd við sjúklingana okkar.
Sérgreinin býður upp á líflegt og krefjandi starfsumhverfi og mikil tækifæri til starfsþróunar. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða aðlögun.
- Almenn sérfræðistörf í samráði við yfirlækni sérgreinarinnar, s.s. greining, meðferð og eftirfylgd sjúklinga með vandamál er tengjast sérgreininni, m.a þátttaka í samráðskvaðningum og göngudeildarþjónustu
- Þátttaka í vöktum sérgreinarinnar
- Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samráði við yfirlækni
- Þátttaka í gæðastarfi sérgreinar
- Íslenskt sérfræðileyfi í háls-, nef- og eyrnalækningum
- Almenn reynsla í greiningu og meðferð sjúkdóma sérgreinarinnar
- Viðbótarþekking í eyrnaskurðlækningum er nauðsynleg
- Reynsla af kennslu- og vísindavinnu æskileg
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Starfsstöð er Landspítali og eftir atvikum önnur sjúkrastofnun sem yfirlæknir hefur sem starfsskyldu að manna.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu, gæðavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir, læknir með lækningaleyfi
Tungumálahæfni: íslenska 4/5