Hjúkrunarfræðingar í tímavinnu á bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítala
Hefur þú áhuga á að taka vaktir á bráða-, lyflækninga- og endurhæfingardeildum Landspítala eða hefur unnið áður á deildunum og langar að koma aftur? Þá er þetta mögulega tækifærið fyrir þig.
Við leitum eftir jákvæðum, sjálfstæðum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum til starfa á Landspítala. Í boði eru vaktir í tímavinnu á bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu. Störfin eru bæði fjölbreytt og krefjandi og fela í sér góð tækifæri til að öðlast fjölþætta reynslu eða viðhalda færni í starfi. Í boði er starfsaðlögun og stuðningur eftir þörfum hvers og eins í samráði við starfseiningar. Starfshlutfall samkomulag.
Innan bráða-,lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu er bráðamóttaka og legudeildir lyflækninga, meltingar- og nýrnalækninga, smitsjúkdóma, lungnalækninga, taugalækninga og bráðaöldrunardeild. Á Landakoti og Grensási eru endurhæfingardeildir.
Vinsamlega skráið í reitinn "Annað" hvort þið sjáið ykkur fært að starfa á lyflækningadeildum, endurhæfingardeildum eða bráðamóttöku einnig er val um að velja sérstaka deild.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
- Skipuleggja, skrá og veita hjúkrunarmeðferð
- Veita markvissa fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Þátttaka og innleiðing nýjunga innan hjúkrunar
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hæfni og vilji til að vinna í teymi
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
- Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna