Félagsráðgjafi - Göngudeild barna- og unglingageðdeildar Landspítala
Metnaðarfullur félagsráðgjafi óskast til starfa á göngudeild BUGL. Í boði er fjölbreytt og líflegt starf þar sem þverfagleg teymisvinna og fjölskylduvinna er í forgrunni. Starfið býður upp á margvísleg tækifæri til að dýpka þekkingu í greiningu og meðferð geðraskana hjá börnum.
Um 80-100% starf í göngudeildarteymi er um að ræða. Starfið felur í sér margvísleg verkefni sem snúa að stuðningi við börn með geðraskanir og fjölskyldur þeirra. Stór hluti af verkefnum félagsráðgjafans er að meta stöðu máls hvað varðar félagslega stöðu barnsins og fjölskyldunnar, tekur þátt í samtali við fjölskyldur barnanna um næstu skref í meðferð, tengir fjölskylduna við þau þjónustukerfi sem þurfa að koma að málum fjölskyldunnar og situr fundi því tengt. Náið samstarf er við önnur teymi á BUGL og þjónustuteymi barnsins utan BUGL og er sýn félagsráðgjafa mikilvæg í að meta næstu skref í þjónustu við barnið. Viðkomandi þarf að vera í stakk búinn að vinna hratt og örugglega, eiga auðvelt með samstarf við ólíka aðila og geta hlaupið til í ný verkefni eftir því sem þörf er á.
Starfið getur hentað bæði nýjum sem og reynslumiklum fagaðila. Möguleiki er á frekari þjálfun í meðferðarvinnu eftir því sem við á. Starfið er laust nú þegar.
BUGL samanstendur af tveimur deildum á Landspítala, legudeild og göngudeild. Þar er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda. Unnið er í þverfaglegum teymum og er mikil samvinna höfð við fagaðila í nærumhverfi.
Á BUGL starfa um 100 einstaklingar í fjölskylduvænu starfsumhverfi. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð og miklir möguleikar eru til starfsþróunar og sérhæfingar. Þjónustan er í stöðugri framþróun og kapp er lagt á notendamiðaða þjónustu og styttingu biðtíma.
- Starfar í þverfaglegu teymi þar sem unnið er að meðferð barna með geðrænan vanda
- Upplýsingaöflun byggð á viðtali við foreldra, barn og fyrirliggjandi gögnum
- Tekur þátt í gerð einstaklingsmiðaðra meðferðaráætlana
- Tekur þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu
- Önnur störf sem heyra undir starfsemi göngudeildarteymis BUGL
- Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis
- Íslenskt starfsleyfi félagsráðgjafa
- Þekking og reynsla af meðferðar- og/ eða ráðgjafarstörfum
- Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu
- Faglegur metnaður, jákvætt hugarfar og geta til að takast á við krefjandi verkefni
- Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Hæfni til að starfa samkvæmt öryggisverkferlum deildar
- Góð íslenskukunnátta, í mæltu og rituðu máli
- Góð almenn tölvukunnátta, geta til að læra nýjungar
- Kunnátta í tungumáli stórra samfélagshópa á Íslandi sem eiga íslensku ekki að móðurmáli er kostur
- Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, félagsráðgjafi