Lyfjaþjónusta Landspítala óskar eftir lyfjafræðingi
Lyfjaþjónusta Landspítala óskar eftir að ráða lyfjafræðing til starfa í blöndunareiningu sjúkrahúsapóteksins. Í lyfjablöndun sjúkrahúsapóteksins starfar um 20 manna samhentur hópur sem blandar í hreinum rýmum einkum næringarblöndur og krabbameinslyfjablöndur. Í lyfjaþjónustu Landspítala starfa um 80 lyfjafræðingar, lyfjatæknar og sérhæfðir starfsmenn við fjölbreytt verkefni og þjónusta sjúklinga á öllum deildum spítalans með öflun, blöndun og dreifingu lyfja ásamt faglegri upplýsingagjöf um lyf.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Um dagvinnu er að ræða auk helgarvakta á u.þ.b. 6 vikna fresti.
- Umsýsla og afgreiðsla lyfja
- Umsjón, undirbúningur og framkvæmd lyfjablöndunar
- Fagleg ráðgjöf og samskipti til samstarfsfélaga, annars heilbrigðisstarfsfólks og skjólstæðinga um lyfjatengd mál
- Önnur tilfallandi verkefni úthlutað af stjórnanda
- Meistarapróf í lyfjafræði og íslenskt starfsleyfi
- Reynsla af lyfjablöndun í hreinum rýmum
- Skipulögð, nákvæm og öguð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni, liðsmaður og jákvætt viðmót
- Góð íslensku- eða enskukunnátta ásamt tölvuþekkingu
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, lyfjafræðingur, teymisvinna