Gæðastjóri á rannsóknarkjarna Landspítala
Laust er til umsóknar starf gæðastjóra við rannsóknarkjarna á rannsóknaþjónustu Landspítala. Starfshlutfall er 100% og er upphaf starfs samkomulag.
Rannsóknarkjarni Landspítala er sameiginleg rekstareining klínískrar lífefnafræði- og blóðmeinafræðideildar. Þar fer fram afar fjölbreytt starfsemi klínískrar rannsóknaþjónustu sem og kennsla og vísindavinna. Á rannsóknarkjarna Landspítala starfa um 150 einstaklingar og er starfsemi allan sólarhringinn alla daga ársins. Rannsóknarkjarni er stærsta og sérhæfðasta eining landsins á sínum sérsviðum.
Vinnuandinn á deildinni einkennist af samvinnu, lipurð, stuðningi, metnaði og góðum liðsanda. Unnið er í öflugum þverfaglegum teymum innan og utan deildar og í nánu samstarfi við aðra starfsemi spítalans.
- Að sjá til þess að deildin fylgi skilgreindum gæðakröfum
- Umsjón með gæðahandbók
- Að auka skilning starfsfólks á gæðastjórnun
- Að stuðla að gæðum og framförum í starfi deildarinnar
- Stefnumótun og þróun gæðastarfs í samráði við stjórnendur
- Vinna á rannsóknarstofum í samræmi við bakgrunn
- Önnur verkefni sem viðkomandi eru falin af yfirmanni
- Að viðhalda og auka eigin þekkingu
- Háskólapróf í lífeindafræði, náttúrufræði, lífefnafræði, líffræði eða sambærilegum greinum
- Íslenskt starfsleyfi á heilbrigðissviði
- Þekking og áhugi á gæðastarfi tengt rannsóknarvinnu og heilbrigðisþjónustu
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
- Reynsla af vinnu á klínískri rannsóknastofu er æskileg
- Reynsla af vísindastörfum er kostur
- Vilji til frekari sérhæfingar í samráði við stjórnendur deildarinnar
- Góð skipulagshæfni, frumkvæði og öguð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, gæðastjóri, náttúrufræðingur, lífeindafræðingur, líffræðingur, heilbrigðisvísindi