Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Við óskum eftir að ráða metnaðarfullan hjúkrunarfræðing til starfa á vöknun Landspítala í Fossvogi. Unnið er í vaktavinnu og er starfshlutfall samkomulag. Starfið laust frá og með 1. júní 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Verkefni hjúkrunarfræðinga á vöknun eru fjölbreytt og snúa að því að sinna bæði börnum og fullorðnum eftir skurðaðgerðir. Á deildina leggjast einnig inn sjúklingar eftir aðrar rannsóknir gerðar í svæfingu eða deyfingu. Við bjóðum einstaklingsmiðaða þjálfun á góðum vinnustað þar sem áhersla er lögð á teymisvinnu, fagmennsku og starfsþróun.
Vöknun er sólarhringsdeild og tilheyrir svæfingu í Fossvogi þar sem unnið er í góðu samstarfi í þverfaglegu teymi fjölmarga fagmanna spítalans. Á deildinni starfa u.þ.b. 20 starfsmenn, hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar og þar ríkir góður starfsandi.
- Að veita nákvæmt eftirlit eftir aðgerðir/ rannsóknir og annað inngrip hjá sjúklingum
- Ákveða, skrá og veita hjúkrunarmeðferð í samræmi við þarfir skjólstæðinga og bera ábyrgð á meðferð samkvæmt starfslýsingu og vinnureglum deildar
- Þátttaka í teymisvinnu og umbótastarfi deildar
- Aðstoð við undirbúning og ísetningu deyfinga, æðaleggja og verkjameðferða
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Faglegur metnaður
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og færni í teymisvinnu
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun