Umsjónarmaður svefnrannsóknarstofu
Við óskum eftir umsjónarmanni svefnrannsókna á Landspítala. Á svefnrannsóknarstofu eru framkvæmdar sérhæfðar klínískar rannsóknir til greininga á svefnvandamálum ásamt meðferðarþjónustu á landsvísu.
Umsjónarmaður svefnrannsókna starfar undir stjórn sérfræðilækna einingarinnar og er lykilaðili í þróun verklagsreglna, gæðastjórnunar, eftirliti og viðhaldsþjálfun starfsmanna til að uppfylla viðurkennda staðla.
Gerð er krafa um umfangsmikla starfsreynslu tengda svefnröskunum. Upphaf starfs er samkvæmt samkomulagi.
Umsjónarmaður svefnrannsókna starfar undir stjórn sérfræðilækna einingarinnar og eru helstu verkefni umsjón með tæknimálum svefnþjónustu, þ.m.t. gæðaeftirlit, umsjón með tækjum og tæknibúnaði ásamt þjálfun annarra starfsmanna á einingunni. Einnig úrlestur gagna, PSG, MSLT og kæfisvefnsskimunarrannsóknum.
Umsjónarmaður svefnrannsókna er lykilaðili í þróun verklagsreglna, gæðastjórnunar, eftirliti og viðhaldsþjálfun starfsmanna til að uppfylla viðurkennda staðla.
- Gerð er krafa um umfangsmikla starfsreynslu tengda svefnröskunum, þ.m.t. uppsetning og túlkun á stig 1 polysomnography (PSG) samkvæmt stöðum AASM fyrir bæði greiningar- og meðferðarrannsóknir
- Háskólapróf í heilbrigðisvísindum eða öðrum raunvísindum sem nýtist í starfi
- Hafa lokið námi/ þjálfun í svefnmælingum (Polysomnographic Technologist (RPSGT))eða sambærilegu
- Reynsla af gæðastjórnun tengt svefnröskunum
- Reynsla af umsjón svefnrannsóknaþjónustu er æskileg
- Reynsla af undirbúningi faggildingar hjá ESRS, AASM, ASA/ NATA eða samsvarandi er æskileg
- Reynsla af vísindarannsóknum svefnraskana er æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og afjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, rannsóknir, heilbrigðisvísindi, rannsóknir