Hjúkrunarfræðingur - Rjóður
Viltu vinna á fjölskylduvænum vinnustað með frábæru samstarfsfólki?
Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingi til starfa í okkar góða hóp. Í boði er góð einstaklingshæfð aðlögun og líflegt starfsumhverfi þar sem vinnuandinn einkennist af samvinnu, stuðningi og góðum liðsanda. Unnið er í vaktavinnu og er ráðið í starfið frá 1. júní 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Rjóður, sem staðsett er í Kópavogi, er deild innan Landspítala sem sinnir hjúkrunar- og endurhæfingarinnlögnum fyrir langveik börn og þar starfa um 30 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Margvísleg tækifæri eru til að þróa með sér góða þekkingu í barnahjúkrun og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum. Á deildinni er tekið á móti börnum upp að 18 ára aldri sem eiga við alvarleg langvinn veikindi og fatlanir að stríða og veitt er fjölbreytt heilbrigðisþjónusta með hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar að leiðarljósi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Hjúkrun langveikra barna
- Stuðningur og ráðgjöf til foreldra/ forráðmanna
- Teymisvinna við fagaðila innan Landspítala og í nærumhverfi barnsins
- Þátttaka í umbóta- og gæðastarfi
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Reynsla í hjúkrun barna er æskileg
- Mjög góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í teymum
- Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi á þverfaglegu samstarfi
- Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun